Mynd af Náttúrufræðistofa Kópavogs

Náttúrufræðistofa Kópavogs

Náttúrufræðistofa Kópavogs var opnuð í desember 1983.

Hlutverk Náttúrufræðistofunnar er að safna, varðveita og sýna náttúrugripi, standa að fræðslu og rannsóknum í náttúrufræðum og stuðla að náttúru- og umhverfisvernd. Árni Waag var ráðinn fyrsti forstöðumaður stofunnar og gegndi því starfi til ársins 1992 þegar Hilmar J. Malmquist tók við. Hilmar gegndi þeirri stöðu til 2014, en núverandi forstöðumaður er Finnur Ingimarsson.

Tilurð Náttúrufræðistofu Kópavogs má rekja til kaupa Kópavogsbæjar á skeldýrasafni Jóns Bogasonar en hann hafði um langt skeið safnað skeldýrum meðfram störfum sínum sem rannsóknamaður hjá Hafrannsóknastofnun. Er þetta skeldýrasafn einn kjarni í náttúrugripasafni Náttúrufræðistofunnar. Á tímum Árna Waag myndaðist einnig töluvert fuglasafn og á síðustu árum hefur einnig orðið til gott safn af berg- og steintegundum. Frá upphafi hefur Kópavogsbær staðið að rekstri stofunnar en hún hefur einnig aflað verulegra sértekna með útseldum verkefnum.

Í maí 2002 fluttist Náttúrufræðistofa Kópavogs í nýbyggt safnahús að Hamraborg 6a og deilir því með Bókasafni Kópavogs. Húsið er sambyggt Salnum í Kópavogi, við hlið Gerðarsafns. Staðsetningin er sérlega góð m.t.t. almenningssamgangna, en aðeins eru fáein skref að skiptistöðinni við Hamraborg.

Húsnæði Náttúrufræðistofunnar er hið fyrsta á landinu sem er hannað frá grunni fyrir náttúrufræðisafn og gerbreytti sýningaraðstöðu á safnmunum og stórbætti möguleika á allri þjónustu. Rannsókna- og vinnuaðstaða fyrir starfsmenn er mjög góð og sama er að segja um aðstöðu til að taka á móti hópum og skólafólki, til dæmis vegna kennslu í náttúrufræðum.

Rannsóknir eru stór hluti af starfsemi Náttúrufræðistofunnar og eru þær einkum á sviði vatnavistfræði. Verkefnin hafa verið af öllum stærðum, stundum í samvinnu við aðrar rannsóknarstofnanir bæði innanlands og utan. Sum verkefni hafa verið unnin fyrir eigin reikning en önnur hafa hlotið styrki s.s. frá Rannís, ESB og Norrænu ráðherranefndinni. Einnig hefur verið nokkuð um útseld verkefni m.a. í tengslum við vatnaflokkun, mat á umhverfisáhrifum og skipulagsmál sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

c