Bíla-Doktorinn ehf

Bíla-Doktorinn er þjónustufyrirtæki fyrir bíla sem rekur bílverkstæði smurstöð og varahlutaverslun sem að mestu leiti hefur sett fókusinn á Mercedes-Benz, Volkswagen, Skoda og Audi bifreiðar. Varahlutaverslun okkar hefur upp á að bjóða marga af algengustu varahlutum fyrir þessar tegundir. Áherslan er lögð á gæðavörur sem uppfylla ströngustu kröfur bifreiðaeigenda og eftirlitsaðila í Þýskalandi, þaðan sem megin uppistaða af okkar vörum kemur. Varhlutaverslun leggur áherslu á að nota öflug upplýsingakerfi til að gera afgreiðslu varahluta eins nákvæma og rétta og mögulegt er. Verkstæði okkar hefur hinsvegar þó sinnt viðgerðum á flestum öðrum bifreiðategundum, a.m.k. þeim tegundum sem algengastar eru hér á landi. Bíla-Doktorinn er ört vaxandi fyrirtæki sem á stóran hóp tryggra viðskiptavina sem margir hverjir hafa átt farsæl viðskipti við okkur frá stofnun fyrirtækisins. Reksgturinn hófst fyrir nokkrum árum með tveim starfsmönnum í 100 f.m. húsnæði í vesturbæ Kópavogs, en er nú í 500 f.m húsnæði í Skútuvogi 13 og starfsmenn þess senn við áttunda mann. Það er markmið okkar að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu byggða á þekkingu og langri reynslu á viðhaldi og umhirðu hvers kyns bifreiða. Okkar aðalsmerki eru vönduð vinnubrögð sem skilar sér í betra umferðaöryggi og áreiðanleika þeirra ökutækja sem við sinnum viðgerðum á.

Employees

Rúnar Sigurjónsson

Eigandi / framkvæmdastjóri
runar@doktorinn.is
c