Kaupfélag Borgfirðinga svf




Kaupfélag Borgfirðinga rekur eina verslunardeild, Búrekstrardeild. Þar eru til sölu ýmsar rekstrarvörur fyrir landbúnað og fl. Vöruval og starfsemin er að mestu sniðin af þörfum bænda á félagssvæðinu, þó einnig sé horft til þjónustu við aðra m.a. sumarbústaðaeigendur á félagssvæðinu.

Þá er KB þáttakandi í smásölumarkaði í samstarfi við Kaupfélag Suðurnesja í gegnum Samkaup, en KB á 13% hlut í Samkaupum en KSK er stærsti eigandi með 52% hlut. Þessi samvinnufélög eru meirihluta eigendur Samkaupa. Því má segja að Samkaup sé stærsta Samvinnuverslun á Íslandi.

Þá á félagið hluti í öðrum fyrirtækjum. Þar má nefna Borgarland ehf (64%) og Fóðurblönduna hf (2%).
Önnur starfsemi er rekstur og útleiga á fasteignum í Borgarnesi og á Akranesi.


Employees

Guðsteinn Einarsson

Kaupfélagsstjóri
gein@kb.is

Margrét K. Guðnadóttir

Verslunarstjóri
margret@kb.is
c