Sjávargrillið ehf
Hinn ungi Gústav Axel Gunnlaugsson, Húsvíkingur og matreiðslumaður ársins 2010, og meistarakokkurinn Lárus Gunnar Jónasson heimsóttu hvern krók og kima á Íslandi til að finna réttu grillblönduna.
Lalli hefur leitað að innblæstri fyrir innréttingar og hönnun staðarins og Gústav viðað að sér þekkingu í grillmenningu Íslendinga og leitað að rétta íslenska hráefninu.
Gamla íshúsið í Flatey á Skjálfanda er nú að hluta komið til Reykjavíkur og bárujárnsplötur þess hafa fundið sér nýtt heimili, ásamt rekavið úr Héðinsfirði, og skýla gestum á Sjávargrillinu, Skólavörðustíg 14.
Gústav hefur hannað matseðil sem er í senn séríslenskur og alþjóðlegur.
Skoðaðu matseðilinn okkar og hafðu samband, okkur er heiður að því að elda
og grilla fyrir þig.
Opnunar tími:
Mánudaga - fimttudaga: hádegi frá 11:00 - 15:00 | kvöld frá 17:00 - 22:30.
Föstudaga og laugardaga: hádegi frá 11:00 - 15:00 | kvöld frá 17:00 - 23:30.
Sunnudagar: kvöld frá 17:00 - 22:3
Employees
Gústav Axel Gunnlaugsson
Framkvæmdastjóri