Garri ehf
Garri sérhæfir sig í innflutningi og sölu á gæðamatvöru, matvælaumbúðum og hreinlætislausnum fyrir veitingastaði, hótel, bakarí, mötuneyti, skóla og aðra opinbera aðila og fyrirtæki. Jafnframt sérhæfir Garri sig í heildarlausnum á rekstrar- og hreinlætisvörum fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru við Lyngháls 2 í Reykjavík. Dreifingarmiðsstöð og lager er á sama stað. Garri hefur yfir að ráða fullkomnum kæli- og frystiklefum.
Starfsfólk Garra hefur það markmið að þjónusta viðskiptavini vel og byggja ofan á það traust sem okkur hefur verið sýnt og jafnframt erum við vakandi gagnvart breytingum og nýjungum á markaði og vöruframboði. Við erum stolt af þeim vörum sem við höfum uppá að bjóða, vörum sem hafa unnið sér fastan sess hjá okkar viðskiptavinum.
Hjá fyrirtækinu starfa um 56 manns. Í sölu og ráðgjafateymi Garra eru matreiðslumenn og bakarar sem eru tilbúnir til aðstoðar við val á vörum og þróun á söluvöru viðskiptavina okkar. Auk þess er í teyminu sérfræðingar í umbúðum og þrifakerfum sem ráðleggja með val á efnum og lausnum.
Við hvetjum þig til að vera í sambandi við sölu- og þjónustuver okkar í síma 5700 300.
Verslunin Besta
Besta er hluti að hreinlætissviði Garra og býður viðskiptavinum þægilegt umhverfi til að skoða og fá ráðgjöf um notkun vöru.
Besta býður upp á mikið úrval af gæða vörum til ræstinga og hagkvæmar og sérsniðnar þrifalausnir fyrir heimili og vinnustaði af öllum stærðum og gerðum. Í teyminu starfa sérfræðingar í þrifakerfum sem ráðleggja með val á efnum og hreinlætislausnum.
Employees
Magnús R. Magnússon
FramkvæmdastjóriJóhannes Ingi Davíðsson
Markaðsstjóri