Mynd af Félagsheimilið Freyvangur

Félagsheimilið Freyvangur

Lógo af Félagsheimilið Freyvangur

Telephone 4631196

Freyvangur , 601 Akureyri

kt. 4101912029

Félagsheimilið Freyvangur var byggt árið 1957 sem félagsheimili Öngulsstaðahrepps. Eigendur hússins eru sveitarfélagið, Búnaðarfélag Öngulsstaðahrepps, Samherjar og Kvenfélagið Aldan-Voröld. Í Freyvangi fór lengi fram félagsstarfsemi af ýmsum toga, bæði fyrir aðila innan sveitarfélagsins sem og aðra.

Upp úr aldamótunum 2000 réðst sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar í stefnumörkunarvinnu um framtíðarhlutverk félagsheimilanna í sveitarfélaginu. Freyvangi var þá markað hlutverk leikhúss enda hafði Freyvangsleikhúsið þá lengi haft aðsetur fyrir sína starfsemi í húsinu og verið einn stærsti notandi þess.

Freyvangur þjónar jafnframt áfram hlutverki félagsheimilis og er húsið leigt út fyrir veislur, tónleika, ættarmót og aðra þá viðburði sem húsið getur þjónað.
Nánari upplýsinga gefa húsverðir Freyvangs á netfanginu freyvangur@esveit.is, í síma 776 5027 (Friðrik) eða í síma 463 1196.

Employees

Ingibjörg Ósk Pétursdóttir

c