Heilsustofnun NLFÍ
Hlutverk Heilsustofnunar NLFÍ
að veita gestum alhliða heilsueflingu með því að veita andlega og líkamlega endurhæfingu
að kenna gestum að bera ábyrgð á eigin heilsu, andlegri og líkamlegri
að bæta færni og þátttöku gesta í daglega lífi
að nota nýjustu aðferðir í nútíma læknisfræði og tengja við náttúrulækningar "sem eru grundvöllur" starfsins og bestu aðferðir hverju sinni í nútíma læknisfræði
að bjóða upp á heilsueflingu með hvíldar- og hressingardvöl.
Á HEILSUSTOFNUN BÝÐST ÞÉR
fyrsta flokks fagleg endurhæfing eftir veikindi og áföll
að læra að bera ábyrgð á eigin heilsu, andlegri og líkamlegri
að bæta færni þína og þátttöku í daglegu lífi
að njóta nýjustu og bestu aðferða í nútíma læknisfræði og náttúrulækninga
að njóta heilsueflingar með hvíldar- og hressingardvöl
heilsuefling í rólegu og þægilegu umhverfi fjarri amstri hversdagsins
frábært umhverfi til hreyfingar og afslöppunar
fyrsta flokks lífrænt mataræði án allra aukaefna
Á Heilsustofnun er litið á matinn sem hluta af meðferð. Alla daga er boðið upp á fjölbreytt grænmetisfæði, auk fisks tvisvar í viku. Boðið er upp á heilsute sem blandað er úr villtum íslenskum lækningajurtum með hverri máltíð. Leitast er við að bjóða einungis upp á lífrænt, ferskt hráefni en sem minnst af unnum matvælum. Öllum gestum sem dvelja í lengri eða skemmri tíma á Heilsustofnun er boðið upp á fullt fæði.
Heilsustofnun er lokuð almenningi eins og staðan er í dag.
Employees
Margrét Grímsdóttir
Framkvæmdastjóri hjúkrunarIngi Þór Jónsson
MarkaðsstjóriAldís Eyjólfsdóttir
StarfsmannastjóriBrynjar Þórsson
Framkvæmdastjóri RekstrarBjörg Ólafsdóttir
InnlagnastjóriÞórir Haraldsson
Forstjóri