Mynd af Trésmiðjan Rein ehf

Trésmiðjan Rein ehf




Trésmiðjan Rein var stofnuð árið 1963 af þeim hjónum Stefáni Óskarssyni og Aðalbjörgu Gunnlaugsdóttur. Fyrirtækið er skráð til heimilis í Rein, 641 Húsavík en aðal starfsemin fer fram að Víðimóum 14, 640 Húsavík. Bæði eru þau enn virk í rekstri Rein en framkvæmdarstjóri er sonur þeirra, Sigmar Stefánsson. Trésmiðjan Rein hefur í dag um 20 starfsmenn, meirihluti þeirra er faglærður.

Trésmiðjan Rein hefur í gegnum árin sinnt öllum hliðum byggingariðnaðarins og gert það vel. Hvort sem um er að ræða stór eða smá verk. Við erum vel tækjum búnir í reisningu á öllum gerðum mannvirkja, varanlegum sem tímabundnum mannvirkjum.




Trésmiðjan Rein hefur í gegnum tíðina sett mark sitt á uppbyggingu á svæðinu með þjónustu við ríki, sveitarfélög, fyrirtæki og einkaaðila. Við erum vel tækjum búnir í flest verk. Trésmiðjan Rein getur tekið að sér verk frá A-Ö, eða allt frá hugmynd að afhendingu lykla á fullbúnu verki.

Á meðal fyrri verka má nefna Jarðböðin í Mývatnssveit, Verslunar og þjónustukjarna í Dimmuborgum, þjónustuhús fyrir Norðursiglingu. Íbúðarhús á Húsavík. Reiðhallir og margt fleira.

Trésmiðjan hefur reynslu af öllum gerðum mannvirkja, bæði í nýbyggingu og í viðhaldi.



Employees

Sigmar Stefánsson

Framkvæmdastjóri
8945828
ragnar@trerein.is

Kort

c