Mynd af Landbúnaðarháskóli Íslands

Landbúnaðarháskóli Íslands

Lógo af Landbúnaðarháskóli Íslands

Telephone 4335000

Hvanneyri , 311 Borgarnes

kt. 4112043590


Landbúnaðarháskóli Íslands gegnir lykilhlutverki í þeim þáttum samfélagsins sem

snúa að matvælaframleiðslu, nýtingu náttúruauðlinda, skipulagsmála, umhverfis- og

loftslagsmála sem og samfélagsins og efnahagslífsins í heild. Rannsóknir spila stórt

hlutverk í starfsemi okkar sem snýr að lykilsviðum okkar; Ræktun og fæða, Skipulag

og hönnun, og, Náttúra og skógur.

Við bjóðum ýmsa námsleiðir á sviðum sem skipta máli til framtíðar í litlum og

persónulegum skóla. Sérstaða okkar er nám við kjöraðstæður þar sem hver

einstaklingur skiptir máli en aðgengi nemenda að kennurum og stoðþjónustu er afar

gott og leggur starfsfólk mikinn metnað í að þjónusta nemendur eftir fremsta megni.

Í grunnnámi eða bakkalár námi er boðið uppá búvísindi, landslagsarkitektúr, náttúru-

og umhverfisfræði, skógfræði og hestafræði. Einnig er hægt að mennta sig til

framhaldsnáms á meistara- og doktorsstigi og bjóðum við líka uppá

meistaranámsbraut í skipulagsfræði og alþjóðlegar brautir

í norðurslóðafræðum og endurheimt vistkerfa sem og einstaklingsmiðað

framhaldsnám. Þá er einnig boðið uppá búfræði sem er starfsmenntanám á

framhaldsskólastigi.

Skólinn býður upp á öflugt fjarnám í mörgum áföngum með reglulegum staðlotum en

einnig myndast góð stemning í staðnámi en nemendafélög skólans standa fyrir

skemmtilegu félagslífi yfir skólaárið.

Á Hvanneyri er aðalstarfsstöð skólans og einnig nemendagarðar í göngufæri með

fjölbreyttum búsetukostum sem henta jafnt einstaklingum, pörum eða fjölskyldufólki.

Einnig er í þorpinu bæði leikskóli og grunnskóli.

Á Keldnaholti er starfsstöð skólans í Reykjavík þar er aðstaða fyrir starfsfólk og

rannsóknir og kennsla í skipulagsfræði.


c