Orkufjarskipti hf

Markmið Orkufjarskipta er að veita góða þjónustu með skilvirkni, áreiðanleika og hagkvæmni að leiðarljósi. Til að mæta ofangreindu markmiði þá leggur félagið áherslu á eftirfarandi atriði: Örugga miðlun upplýsinga til viðskiptavina um rekstur fjarskiptakerfisins. Virkt eftirlit og ábyrga umsjón með fjarskiptakerfinu. Skilvirka innleiðingu nauðsynlegra úrbóta. Hagkvæmni við uppbyggingu og rekstur fjarskiptakerfisins. Nýtingu auðlinda með sjálfbærni í huga. Miðlun þekkingar og fræðslu til starfsmanna. Stýringar og varnir raforkukerfa hér á landi kalla á mjög víðfeðm, sérhæfð og rekstrartrygg fjarskiptakerfi. Orkufjarskipti annast rekstur og viðhald á fjarskiptakerfi fyrir orku- og tengivirki raforkukerfisins sem staðsett eru víðsvegar á landinu. Þessir tengistaðir þurfa áreiðanleg og traust fjarskiptasambönd fyrir m.a. stjórn- og varnarbúnað raforkukerfisins. Fjarskiptaþjónusta Orkufjarskipta uppfyllir kröfur um rekstraröryggi fyrir raforkukerfið og mannvirki þess.

Employees

Bjarni M. Jónsson

Framkvæmdastjóri
bjarnimj@orkufjarskipti.is
c