Ektafiskur ehf

Ekta fiskur er hágæða íslenskur fiskur, tilbúinn í pottinn eða ofninn. Hjá Ekta fiski færðu alvöru saltfisk og holla tilbúna rétti. Sérstaða Ekta fisks í saltfiski felst í fyrsta flokks hráefni unnið á máta sem gerir Ekta fisk að einstöku hráefni til matreiðslu, enda er Ekta fiskur borinn á borð helstu veitingastaða landsins sem og fjölda veitingahúsa víða um Evrópu. Ekta fiskur á rætur í yfir 60 ára gömlu fjölskyldufyrirtæki á Hauganesi í Eyjafirði. Ekta fiskur hefur til leigu glæsilegt orlofshús í Vaðlaheiði með frábært útsýni yfir Akureyri. Húsið er fullbúið með fjórum svefnherbergjum með tvíbreiðum rúmum, tveim baðherbergjum, vönduðum húsgögnum og búnaði, heitum potti, grilli og svefnloft með 7 þykkum dýnum. Höfum milligöngu um sjóstangveiði,hvalaskoðun og hestaferðir og ýmsa afþreyingu. Kjörið fyrir brúðhjón, starfsmannafélög, fjölskyldur og alla þá sem vilja eiga notalegar stundir í stórkostlegu umhverfi.

Employees

Elvar Reykjalín Jóhannesson

Framkvæmdastjóri
elvar@ektafiskur.is

Guðlaug J Carlsdóttir

Sölustjóri
gulla@ektafiskur.is

Eva Reykjalín

Gisting og sport
eva@ektafiskur.is
c