Mynd af Sunna, garðyrkjustöð

Sunna, garðyrkjustöð



Lífræn ræktun á Norðurlöndum á upphaf sitt að rekja til Sólheima, en á Sólheimum hefst lífræn/biodynamísk ræktun árið 1930.

Lífræn ræktun byggir á því að varðveita frjósemi jarðvegarins og ekki er notast við kemísk efni til að auka vaxtarhraða grænmetisins. Lífrænar varnir eru notaðar til að takast á við óværur sem koma upp. Stunduð er skiptirækt til að viðhalda frjósemi jarðvegarins og minnka hættuna á sjúkdómum. Við ræktunina er notast við moltu, fiskimjöl og þörungamjöl.

Helstu framleiðsluvörur Sunnu eru:

  • Tómatar.
  • Kirsuberjatómar.
  • Agúrkur.
  • Paprikur.
  • Salat.
  • Blandað salta í bökkum.
  • Kokteltómatar.
  • Míní gúrkur.
  • Blandað salat í bökkum.

Sunna hefur alla tíð ræktað lífrænt grænmeti. Afurðir Sunnu er seldar til mötuneytis Sólheima, í versluninni Völu á Sólheimum, einnig í verslunum Hagkaups og í verslunum Nettó. Útlitsgallað grænmeti er nýtt til niðursuðu í Næranda og þannig nýtist framleiðslan að fullu.
Framleiðsla Sunnu er lífrænt vottuð af vottunarstofunni Túni.

Garðyrkjustöðin Sunna er einn stærsti framleiðandi á lífrænt ræktuðu grænmeti undir gleri á Íslandi.



Skógræktarstöðin Ölur er eina lífrænt vottaða skógræktarstöðin á Íslandi.

Það er talsvert meiri vinna að koma upp trjáplöntum með lífrænum aðferðum en á móti eru lífrænt ræktaðar plöntur með sterkt rótarkerfi og því lífvænlegar og ekki síður er þetta vistvæn aðferð þar sem að það eru ekki notuð kemísk efni heldur er náttúran látin sjá um að næra og verja plöntuna. Skógræktarstöðin Ölur tók formlega til starfa þann 27 apríl árið 1991.

Mikil aukning hefur verið á undanförnum árum í sölu á trjám og plöntum til sumarbústaðaeigenda, nágranna og annarra gesta sem oft koma langt að til að fá sterkar og fallegar plöntur hjá Ölri. Skógræktarstöðin er nefnd eftir trjátegund sem nefnist Ölur og er stolt í trjáræktarræktuninni og er eftirspurn eftir þessari fallegu plöntu stöðugt að aukast.

Stefnt verður að því á að auka stöðugt framleiðslu á forræktuðu salati og kryddjurtum til að planta í potta á svölum eða í garðinn og geta boðið uppá nýtt og blandað salat eða nýtt ferskar kryddjurtir við matseldina.

Framleiðsla Ölurs er fjölbreytt og eru helstu tegundir í ræktun:

  • Ölur ýmsar tegundir.
  • Alaskaösp.
  • Ilmbjörk.
  • Reynir, ýmsar tegundir.
  • Víðir, ýmsar tegundir.
  • Furur, ýmsar tegundir.
  • Greni, ýmsar tegundir.
  • Blómstrandi runnar.
  • Forræktaðað krydd og kál.

Á Sólheimum er hafin tilrauna-ræktun á mismunandi tegundum ávaxtatrjáa í samstarfi við Garðyrkjufélag íslands og Landbúnaðarháskóla Íslands og verða gróðursett tré víða á Sólheimasvæðinu.

Sólheimar eru aðili að Bændaskógum í umsjón Suðurlandsskóga og hefur Ölur haft umsjón með ræktun, plöntun og umhirðu skógræktarsvæðisins. Plöntunin hófst 1991 og er ræktað á 200 hektara svæði í landi Sólheima.


Á svæði skógræktarstöðvarinnar er trjásafn þar sem áhugasamir ræktendur geta gengið á milli fjölbreyttra trjátegunda skoðað hvað hentar við eigin ræktun.



Kort

c