![Mynd af Stólpi Gámar ehf](https://api.finna.is/uploads/company/header_image/1298/original.png?feaa66fddea107bcfc7e106a7219d28a)
Stólpi Gámar ehf
![Lógo af Stólpi Gámar ehf](https://api.finna.is/uploads/company/logo/1298/original.jpg?feaa66fddea107bcfc7e106a7219d28a)
Gámasala – gámaleiga
Stólpi Gámar bjóða til sölu flestar gerðir og stærðir notaðra gáma, s.s geymslugáma, kæli- og frystigáma, einangraða gáma, fleti og tankgáma.
Stólpi Gámar eru einnig með til leigu gáma sem nýtast vel sem geymsla undir lager, fyrir árstíðabundnar vörur og búslóðir. Gámarnir eru í stærðunum 6, 8, 10, 20 og 40 feta. Viðskiptavinum býðst að geyma gáminn á lokuðu svæði fyrirtækisins í Óseyrarbraut 12 í Hafnarfirði.
Hjá Stólpa Gámum er einnig hægt að leigja einingahús til ýmissa nota, t.d. fyrir kaffistofur, skrifstofur eða viðbótar gistirými fyrir aðila í ferðaþjónustu. Einnig býður fyrirtækið salerniseiningar sem koma með öllum tækjum og lögnum og eru tilbúin til notkunar.
Athafnasvæði Stólpa Gáma er í Klettagörðum 5 í Reykjavík en þar fer fram sala og leiga á gámum svo og viðgerðir og endurbætur á húseiningum.
Í Óseyrarbraut 12 Hafnarfirði fer fram afgreiðsla á geymslu- og sölugámum og þar er geymslusvæði Stólpa Gáma á þeim gámum.
Í Sægörðum 15 eru viðgerðir á gámum og tengivögnum. Auk þess er Alkul ehf. þar til húsa en fyrirtækið er með áralanga sérhæfða þekkingu á öllu er viðkemur kælikerfum, með alhliða viðgerðum á kæli- og frystitækjum ásamt leka- og bilanagreiningu, sem og áfyllingu allra gerða A/C loftkælikerfa kerfa.
Trésmíðaverkstæðið Stólpi ehf er til húsa í Vatnagörðum 16 Reykjavík.
Aðrar skráningar
Vörumerki og umboð
![c](https://www.mbl.is/lina-lookup/cnt.gif?c=finna&p=company&i=1298)