Fjölmiðlavaktin
Atvinnulífið stendur frammi fyrir sívaxandi magni fjölmiðlaefnis sem erfitt er að henda reiður á. Hlutverk Fjölmiðlavaktarinnar ehf (FMV) er að aðstoða fyrirtæki og einstaklinga við leit og greiningu á þessu efni. FMV safnar saman umfjöllun ljósvaka- og prentmiðla fyrir viðskiptavini sína, þjónustan er sérsniðin að þörfum hvers viðskiptavinar. FMV er annað dótturfélaga Creditinfo group hf. á Íslandi, hitt er Lánstraust hf.
Hjá FMV er lesið og safnað efni úr u.þ.b.100 blöðum og tímaritum. Einnig eru vaktaðir helstu fréttatímar og fréttatengdu viðtalsþættir ljósvakamiðlanna.
FMV er í nánu samstarfi við erlend vöktunarfyrirtæki og er því auðvelt fyrir viðskiptavini að fylgjast með tiltekinni umfjöllun í erlendum fjölmiðlum.
Gildi:
SÉRÞEKKING
GÆÐI
FAGMENNSKA
Helstu vörur:
-Blaðaþjónusta
-Ljósvakaþjónusta
-Leitarvél á www.fmv.is
-Þýðingar og útdrættir úr erlendu fjölmiðlaefni
-Fjölmiðlagreining
FMV gerir innihalds- og ímyndargreiningu á fjölmiðlaefni sem auðveldar stjórnendum að meta áhrif og móta stefnu í markaðs- og fjölmiðlamálum.
-Bráðaþjónusta
Þjónusta:
FMV vaktar umfjöllun helstu prent- og ljósvakamiðla og veitir viðskiptavinum upplýsingar um alla þá umfjöllun sem þeir óska eftir. Þeir sem notfæra sér þjónustuna:
- öðlast betri yfirsýn
- eru ávallt vel upplýstir um þá umfjöllun sem þá snertir
- viðhalda þekkingu sinni
- eru betur í stakkbúnir til að bregðast rétt við umfjöllun fjölmiðla
- spara tíma og fjármuni.
Starfsmenn
Rakel Sveinsdóttir
Framkvæmdastjórirakels@fmv.is
Ásmundur K. Ólafsson
Ráðgjafiasmundur@fmv.is
Magnús Heimisson
Sérfræðingur fjölmiðlagreiningamagnus@fmv.is