Mynd af RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri

RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri

Borgum v/Norðurslóð

Lógo af RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri

Sími 4608900

Norðurslóð , 600 Akureyri

kt. 4106922529



RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri er sjálfstæð eining innan Háskólans á Akureyri (HA) og hefur verið starfandi frá árinu 1992. Hlutverk okkar hefur frá upphafi verið að:

  • Efla rannsóknir við HA
  • Stunda þjónusturannsóknir
  • Gefa út og kynna niðurstöður rannsókna við HA
  • Styrkja tengsl HA við atvinnulífið
  • Hafa samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaaðila
  • Veita upplýsingar og ráðgjöf
  • Standa fyrir námskeiðum, fyrirlestrum og ráðstefnum


Starfsfólk RHA er vel menntað á margvíslegum sviðum og þar af leiðandi getum við tekið að okkur fjölbreytt verkefni. Gott aðgengi er að akademískum starfsmönnum HA sem eykur mjög getu okkar á ólíkum fagsviðum. Viðskiptavinir okkar og samstarfsaðilar eru fjölbreytilegur hópur. Afrakstur rannsókna RHA er almennt aðgengilegur á vefsíðu miðstöðvarinnar í rafrænu formi (flokkað eftir árum). Til viðbótar við rannsóknaverkefni sem unnin eru fyrir fyrirtæki og stofnanir, innlendar sem erlendar, býður RHA upp á margvíslega þjónustu sem kemur að rannsóknum, sérhæfða sem almenna. Hér má nefna; hönnun og framkvæmd rannsókna, gerð spurningalista og viðtalsramma, tölfræðileg og eigindleg úrvinnsla, jafnlaunakannanir, vef-,úthringi og póstkannanir. Auk þess sem RHA hefur yfir að ráða sjálfvirkum skönnunar- og gagnavinnsluhugbúnaði sem færir upplýsingar af prentformi yfir í stafrænt form.

Við erum opin fyrir hvers kyns samstarfi og leitum leiða til að greiða götu þeirra sem hafa hug á að nýta þjónustu okkar á sviði rannsókna. Hafa má samband á rha@unak.is í s. 460-8900 eða beint til einstakra starfsmanna.



Starfsmenn

Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir

Forstöðumaður
gudrunth@unak.is

Kort

c