Mynd af Samtök sveitarfélaga Norðurland vestra SSNV

Samtök sveitarfélaga Norðurland vestra SSNV

Lógo af Samtök sveitarfélaga Norðurland vestra SSNV

Sími 4194550

Höfðabraut 6, 530 Hvammstangi

kt. 5412922419

MARKMIÐ OG HLUTVERK

Samtökin nefnast Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, skammstafað SSNV. Starfssvæði samtakanna afmarkast af sveitarfélagamörkum allra sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, allt frá Almenningsnöf í austri að Stikuhálsi milli Bitru og Hrútafjarðar í vestri. Heimili og varnarþing samtakanna er á skrifstofu SSNV á Hvammstanga.

Öll sveitarfélög á Norðurlandi vestra eru aðilar að SSNV en þau eru eftirfarandi:

Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduós, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagaströnd, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur.

SSNV eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og starfa með tilvísun til 97. greinar sveitarstjórnlaga nr. 138/2011. Samtökin eru hagsmuna-, þjónustu- og samstarfsvettvangur sveitarfélaganna. Málaflokkar sem SSNV fæst við varða m.a. byggðaþróun, atvinnumál, menntamál, samgöngumál, menningarmál og kynningu Norðurlands vestra. Heimilt er að stofna og starfrækja ráð og nefndir til að sinna afmörkuðum verkefnum og hafa samvinnu um vinnu við tiltekna málaflokka á grundvelli samninga.

Markmið samtakanna eru:

  • að efla samvinnu sveitarfélaga og auka þekkingu sveitarstjórnarmanna á verkefnum sveitarstjórna
  • að vinna að hverjum þeim verkefnum sem aðildarsveitarfélög eða löggjafinn kunna að fela þeim
  • að styrkja stöðu aðildarsveitarfélaganna á landsvísu
  • að stuðla að eflingu atvinnulífs á Norðurlandi vestra

SSNV skal starfa í samvinnu við önnur landshlutasamtök sveitarfélaga, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra aðila eftir því sem hagsmunir bjóða hverju sinni og við verður komið.

c