Selasigling ehf
Selaskoðun er ný upplifun í íslenskum ferðamannaiðnaði. Við bjóðum upp á sjóferðir frá Hvammstanga í kringum Miðfjörð og Húnaflóa á sumrin, sem gefur þér möguleika á að skoða seli í þeirra náttúrulega umhverfi.
Fylgið okkur í ferðir til að skoða seli, og náttúru í Miðfirði, með ykkar eigin augum. Þetta er upplifun sem mun lifa lengi í minnum, og skapar svo sannarlega nýja sýn á líf og náttúru.
Tilvalið er fyrir hópa að nýta sér Siglingar með Selasiglingum ehf.
Starfsmenn
Kjartan Sveinsson
EigandiEðvald Daníelsson
Eigandi