Fyrirtækið
Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. býður upp á ráðgjöf og þjónustu við matvælafyrirtæki og fóðurframleiðendur. Boðið er upp á örverumælingar, t.d. vegna mats á ferskleika, efnagreiningar vegna krafna um næringargildismerkingar, aðstoð við uppsetningu og viðhald innra eftirlits, hreinlætiseftirlit og ýmis konar fræðslu og námskeið fyrir starfsfólk í matvæla- og fóðuriðnaði.
Heildarlausnir fyrir fyrirtæki:
- Gæðamál: Uppsetning og uppfærslur á gæðahandbókum, þjálfun og fræðsla fyrir starfsfólk
- Efna- og örverumælingar: Geymsluþol, gæðakröfur, næringargildi
- Úttektir á gæðakerfum: IFFO RS., RFM og MSC, BRC í samstarfi við Global Trust Certification
- Úttektir: Hreinlætisúttektir, vörumerkingar, framleiðsluvörur, farmúttektir
- Vöruþróun og meðferð matvæla: Aðstoð við úrlausn tæknilegra vandamála, geymsluþol, nýting o.fl.
- Umhverfismál: Sýnatökur og mælingar á frárennsli og útblæstri, ráðgjöf í samstarfi við Verkís
- Matvælaskólinn hjá Sýni: Fjölbreytt námskrá um flest sem við kemur matvælum, einnig námskeið fyrir einstaklinga og hópa tengd matargerð og hollustu
Hjá Sýni starfar faglært fólk með háskólapróf í matvælafræði, efnafræði, sjávarútvegsfræði og verkefnastjórnun og er fyrirtækið í dag einn stærsti einkarekni vinnustaður fyrir háskólamenntað fagfólk í matvælaiðnaði. Í ráðgjöfinni sameinast þekkingin svo allri þeirri reynslu sem byggst hefur upp í fyrirtækinu á þeim rúmlega 20 árum sem það hefur starfað.
Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. starfrækir einu einkareknu prófunarstofuna á þessu sviði sem fengið hefur faggildingu skv. IST EN ISO/IEC 17025 staðlinum fyrir algengustu efna- og örveruprófanir.