Landssamband hestamannafélaga, Íþróttamiðstöðinni Laugardal
Landssamband hestamannafélaga (LH) er æðsti aðili innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) um alla þætti hestaíþrótta og málefni þeim tengdum.
Auk hefðbundinnar keppni, æfinga og þjálfunar til líkamlegrar heilsuræktar, samanber lögum ÍSÍ, er það í verkahring LH að sinna hagsmunamálum sem tengjast hestaíþróttum svo sem á sviði ræktunarmála, tamninga, samgöngu- og ferðamála, landnýtinga- og umhverfismála.
Önnur markmið eru m.a:
- Að hafa yfirumsjón og vinna að eflingu hestamennsku m.a. með fræðslu, útbreiðslu- og kynningarstarfsemi.
- Að vera málsvari hestamanna jafnt innanlands sem erlendis.
- Að eiga samstarf við önnur samtök er sinna hagsmunamálum hestamanna, svo sem á sviði ræktunarmála, tamninga, samgöngumála, ferðamála, landnýtingar og umhverfismála á vegum ríkis og sveitarfélaga.
- Að koma fram gagnvart opinberum aðilum.
- Að vinna að stofnun nýrra sérráða.
- Að setja nauðsynlegar reglur, löggilda dómara, ráðstafa landsmótum og staðfesta met.
- Að vera fulltrúi hestaíþrótta gagnvart erlendum aðilum og sjá um að reglur varðandi greinina séu í samræmi við alþjóðareglur þar sem það á við.
Starfsmenn
Lárus Ástmar Hannesson
Formaðurlh@lhhestar.is