Eyjólfsstaðir á Héraði

Á Eyjólfsstöðum er rekin gistiþjónusta,samtals 21 herbergi með 49 rúmum.
Í boði eru uppábúin rúm eða svefnpokagisting með morgunmat í fallegu timburhúsi með notalegum morgunverðarsal og rúmgóðum setustofum.
Herbergin eru tveggja til fjögurra manna með vaski, en sturtur og salerni eru sameiginleg. Á staðnum er þráðlaus nettenging. Fyrir hópa bjóðum við upp á tveggja og þriggja rétta kvöldverð sé pantað fyrir fram, en allir gestir njóta góðs morgunverðarhlaðborðs þar sem m.a. er að finna heimabakað brauð og morgunkorn.
Í Eyjólfsstaðaskógi eru fallegar gönguleiðir í friðsælli náttúrunni.
Í nágrenni Eyjólfsstaða eru margir fallegir staðir, svo sem Hallormsstaðaskógur, Atlavík, Hengifoss og Skriðuklaustur.
Opið er frá 1. Maí - 30. September
Starfsmenn
Vilborg Schram
Staðarhaldari