
Marel Iceland ehf
Commercial & Industrial Equipment

Í fararbroddi á heimsvísu í fiski, kjöti og kjúklingi
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Marel er alþjóðlegt fyrirtæki og hjá því starfa yfir 4.000 manns um allan heim. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í fleiri en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.
Hjá Marel finnur þú allt sem þú þarft á einum stað
Eftir kaup á nokkrum framúrskarandi fyrirtækjum á undanförnum árum býður Marel upp á heimsþekkt vörumerki á borð við Stork Poultry Processing og Townsend Further Processing. Vöruframboð fyrirtækisins spannar allt framleiðsluferlið, frá frumvinnslu hráefnis til pökkunar í neytendaumbúðir.
Marel býður upp á mikið úrval háþróaðra tækja og hugbúnaðar, þar á meðal vogir, flokkara, skurðarvélar, sagir, eftirlitsbúnað, beintínsluvélar, frysta, pökkunar- og merkingarvélar, svo eitthvað sé nefnt. Þá býður fyrirtækið upp á samþætt heildarkerfi sem henta á öllum helstu sviðum matvælavinnslu ásamt lausnum sem eru sérsniðnar að þörfum viðskiptavina.
Nýsköpun sprettur úr samstarfi
Undanfarin þrjátíu ár höfum við tengt saman það sem viðskiptavinir okkar og samstarfsaðilar gera best og það sem við gerum best. Sameinaðir kraftar hafa skilað matvælaiðnaðinum og samfélaginu auknum verðmætum. Með stöðuga nýsköpun að leiðarljósi hefur Marel umbreyst úr sprotafyrirtæki í heimsleiðtoga á sínu sviði. Fyrirtækið leggur að meðaltali 5-6% af veltu í rannsóknar- og þróunarstarf á ári hverju, sem er hæsta hlutfall sem fyrirfinnst í greininni. Framsæknar tækja- og hugbúnaðarlausnir frá Marel gera framleiðendum kleift að hámarka nýtingu, afköst og arðs.
Starfsmenn
Sigsteinn Grétarsson
AðstoðarforstjóriValdimar G. Sigurðsson
SölustjóriÓskar Óskarsson
SölustjóriNótt Thorberg
MarkaðsstjóriAuðbjörg Ólafsdóttir
Fjárfestatengslog samskipti