Bonafide lögmenn
Bonafide lögmenn er lögmannsstofa sem var stofnuð árið 2009. Hjá Bonafide lögmönnum starfa þrír lögmenn auk skrifstofustjóra. Lúðvík Bergvinsson lögmaður er með réttindi til málflutnings fyrir Héraðsdómstólum og Landsrétti. Sigurvin Ólafsson lögmaður og Kolbrún Arnardóttir lögmaður eru með réttindi til málflutnings fyrir Héraðsdómstólum.
Starfsfólk stofunnar sinnir málaflokkum á flestum sviðum lögfræðinnar fyrir einstaklinga, fyrirtæki, opinberar stofnanir, sveitarfélög og erlenda aðila. Í öllum sínum störfum hafa Bonafide lögmenn að leiðarljósi fagmannleg og metnaðarfull vinnubrögð, heiðarleika og virðingu fyrir viðskiptavininum.
Sérstök áhersla er lögð á skapandi vinnubrögð og samvinnu við að finna lausnir í þeim verkefnum sem starfsmenn stofunnar fást við. Gleði, góður liðsandi, samheldni og samvinna starfsfólks eru mikilvægir þættir í daglegu starfi Bonafide lögmanna.
Starfsmenn
Lúðvík Bergvinsson
LögmaðurSigurvin Ólafsson
LögmaðurKolbrún Arnardóttir
LögmaðurÞóra Gunnarsdóttir
Skrifstofustjóri