
Poulsen ehf

Markmið Poulsen er vera leiðandi í innflutningi á bílavarahlutum, olíum, smurvörum, bílalakki, slípivörum og framrúðum í bíla. Einnig að útvega búnað og varahluti fyrir iðnfyrirtæki á Íslandi. Við setjum okkar viðskiptavini ávallt í fyrsta sæti og þjónustum þá eftir okkar bestu getu, þar sem gæði og þjónusta er í fyrirrúmi.
Vald Poulsen ehf var stofnað árið 1910 af Valdemar Poulsen, dönskum járnsteypumeistara og byggir því á yfir hundrað ára gömlum grunni. Okkur er það ljóst að hjól atvinnulífsins mega ekki stoppa og því höfum við alltaf lagt metnað okkar í örugga afgreiðslu bæði á vörum og tíma, hvort heldur um sérstaka hluti er að ræða eða heildarlausnir í ákveðnum verkefnum. Einnig höfum við lagt ríka áherslu á að eiga vöruna á lager eða að geta útvegað vöruna með stuttum fyrirvara.
Pulsen er í samstarfi við marga af þekktustu framleiðendum í heimi eins og Cromax, Spies Hecker, 3M, Valvoline, Mintex, Optimal, Brisk, Bilstein, Pilkington, Dan Glas, NSK, Brook Hansen, Fenner, Flösser, Sonic, Sealy o.m.fl. Nánari upplýsingar er að finna á vefslóð: poulsen.is
Starfsmenn Poulsen leggja mikla áherslu á að bjóða trausta þjónustu og stefna að því að gera sífellt betur, þar sem tekið er mið af þörfum og óskum viðskiptavinarins.
Við erum meðal annars með:
Cromax bílalakk Cromax bílalakk
3M bón- og slípivörur Farécla bón- og slípivörur
4CR slípi- og málningavörur Valvoline olíur
Mintex bremsuvörur Optimal hjólalegursett, tímareimasett, vatnsdælur o.fl.
Brisk kerti Bilstein demparar
Pilkington bílrúður Dan Glas bílrúður
Bílrúðuísetningar AGC bílrúður
NSK legur Splintex bílrúður
Brook Hansen rafmótorar Fenner drifbúnaður
Flösser bílljósaperur Sonic verkfæri
Sealy verkfæri Worx handhreinsar
Bílavarahlutir, kúlu-, kefla- og veltilegur - Pakkdósir - Bílrúður - bílalakk - Pakkdósir - Verkfæri Rafmótorar og gírmótorar - Reimar og reimskífur - Klemmfóðringar - Tannhjól og keðjur - Talíur - Dælur - Lokar fyrir gufu, vatn, olíu og ammoníak - Réttingarbekkir -Hliðarrúður í bíla - Afturrúður í bíla - Höggdeyfar - Hitaveitulokar - Vatnsveitulokar - Verkfæri - Vagnahjól - Vírnet - Smurkerfi - Smurfeiti og olíur - Smurkoppar.
Starfsmenn
Ragnar Matthíasson
FramkvæmdastjóriVörumerki og umboð
