Rammi hf
Rammi hf. rekur í Þorlákshöfn fiskiðjuver þar sem framleiddar eru afurðir fyrir kröfuharða markaði í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum.
Frá aprílbyrjun og fram í lok september er megináherslan lögð á humarvinnslu og er mest af humrinum pakkað heilum og hann frystur.
Yfir vetrartímann byggist vinnslan að mestu leyti á vinnslu á langlúru, karfa og skrápflúru.
Kolategundir eru bæði flakaðar og heilfrystar fyrir fyrrgreinda markaði en karfinn er flakaður fyrir Evrópumarkað og seldur ferskur eða frystur, lausfrystur eða millilagður og blokkfrystur.
Í verksmiðjunni er lögð mikil áhersla á vöruvöndun og hreinlæti. Gott skráningarkerfi tryggir rekjanleika vörunnar frá veiðum til viðskiptavinar.
Starfsmenn
Gunnar Sigvaldason
Framkvæmdastjórigunnar@rammi.is
K. Haraldur Gunnlaugsson
Skrifstofustjórikharaldur@rammi.is
Ólafur H. Marteinsson
Framkvæmdastjóriolafur@rammi.is
Unnar Már Pétursson
Fjármálastjóriunnar@rammi.is
Björn Valdimarsson
Markaðsstjóribjorn@rammi.is
Jón Páll Kristófersson
Rekstrarstjórijonpall@rammi.is
Ragnar Aðalsteinsson
Útgerðarstjóriragnar@rammi.is