RST Net ehf
Ný framkvæmdir
◦Orkuver, virkjanir, iðjuver - RST Net tekur að sér í samstarfi við aðra, alla framkvæmd við uppsetningu búnaðar í rafmagns- og vélahluta orku- og iðjuvera.
◦Aðveitustöðvar - RST Net tekur að sér sjálfstætt eða í samstarfi við aðra, útvegun búnaðar og alla framkvæmd við uppsetningu hans við byggingu eða breytingar aðveitustöðva.
◦Loftlínur, jarðstrengir - RST Net tekur að sér sjálfstætt eða í samstarfi við aðra, útvegun búnaðar og alla framkvæmd við uppsetningu og tengivinnu dreifi- og flutningslína og lagningu há- og lágspennujarðstrengja.
◦Almennar raflagnir - RST Net tekur að sér sjálfstætt eða í samstarfi við aðra, alla almenna raflagnavinnu í iðnaðarhúsnæði, verksmiðjum, dælustöðvum og íbúðarhúsnæði.
Sérhæft rafmagns- og vélaverkstæði
Rafmagnsverkstæði RST Nets sérhæfir sig í viðgerðum og upptektum á afl- og dreifispennum sem og öðrum háspennubúnaði, s.s. rafmótorum, spennustillum og aflrofum.
Þjónusta við afl- og dreifispenna tekur til þátta eins og:
◦upptektar á þrepaskiptum
◦galvanhúðunar / málunar spennahylkja og kæla
◦meðhöndlunar spennaolíu
◦vindingavinnu
◦mælinga og prófana
Tenging og víring búnaðar í stjórnskápum fyrir aðveitustöðvar og orkuver er einnig unnin á verkstæðinu.
Á vélaverkstæði RST Nets er unnin ýmis vinna sem tengist verkefnum fyrirtækisins í virkjunum, aðveitustöðvum og iðjuverum. Þar er m.a. um að ræða smíði á stálvirki, undirstöðum og upptekt á vélahlutum.
Starfsmenn
Þórarinn Kristján Ólafsson
RafmagnsverkfræðingurArnhildur Ásdís Kolbeins
FjármálastjóriKristján Þórarinsson
RafmagnstæknifræðingurBjarni Jónsson
RafmagnstæknifræðingurKristófer Guðni Kolbeins
TölvunarfræðingurSteinn Þórhallsson
ÞjónustustjóriSigmundur Jónsson
Framkvæmdastjóri