Garðyrkjustöðin Kvistar

Garðyrkjustöðin Kvistar er í Reykholti, Biskupstungum, Bláskógabyggð. 100 km frá Reykjavík. Keyrt er upp Grímsnesið áleiðis að Geysi, framhjá Reykholti ca. 300 m, þá komið að skilti við þjóðveginn sem vísar á garðyrkjustöðina. Í dag eru framleiddar og til sölu ýmsar tegundir garð- og skógarplantna, ýmist ungplöntur í bökkum eða eldri plöntur í pottum. Garðyrkjustöðin hefur frá upphafi framleitt plöntur fyrir Landshlutabundnu skógræktarverkefnin s.s. Suðurlandsskóga, Vesturlandsskóga og Hekluskóga, og sérhæfir sig í framleiðslu skógarplantna og plantna í sumarbústaðalönd. Nú er garðyrkjustöðin að hefja ræktun á Hindberjum og vonast er til að fyrsta uppskera verði í júní,júlí og vonandi getum við þá boðið til sölu fersk Hindber. Jarðaberjauppskeran ætti að koma á markað um miðjan júní. Garðplöntuframleiðsla Gróðrarstöðvar Skógarplöntur Skógrækt Tré og runnar

Starfsmenn

Hólmfríður Geirsdóttir

Eigandi

Steinar Á. Jensen

Eigandi
c