Kjörís ehf
Um Kjörís
Kjörís hóf starfsemi 31. mars 1969 í Hveragerði. Stofnendur fyrirtækisins voru Gylfi og Bragi Hinrikssynir ásamt Hafsteini, Guðmundi og Sigfúsi Kristinssonum. Frumkvöðlar að stofnun Kjöríss voru Hafsteinn, mjólkurtæknifræðingur og Gylfi, véltæknifræðingur. Hafsteinn hafði starfað hjá Búnaðarsambandi Íslands og Osta- og smjörsölunni áður en hann stofnaði Ostagerðina hf. í Hveragerði 1966 sem hann rak í 2 ár. Gylfi rak heildsölu í Reykjavík, G.Hinriksson hf., ásamt því að hafa komið að rekstri Rjómaísgerðarinnar í upphafi sem var fyrsta ísgerð landsins.
Sagan
Kjörís hefur verið fjölskyldufyrirtæki frá upphafi. Framleiðslutegundir Kjörís voru í upphafi núgga, súkkulaði og vanillu pakkaís ásamt frostpinnum en fljótlega bættust við vörur eins og íspinnar, toppar, boltaís og ístertur. Í dag er Kjörís í samstarfi við aðra aðila, framleiðir ís fyrir önnur fyrirtæki auk þess að vera með umfangsmikinn innflutning á nokkrum af vinsælustu ís- og klakategundum í heimi.
Starfsmenn
Valdimar Hafsteinsson
FramkvæmdastjóriAnna Kristín Kjartansdóttir
SkrifstofustjóriAnton Tómasson
GæðastjóriHafsteinn Valdimarsson
MarkaðsfulltrúiGuðmundur Erlingsson
SölustjóriGunnlaugur Lárusson
Framleiðslustjóri